12. febrúar  2006
Gömul vefsíða
Hér má líta vefsíðu sem var skilin eftir þegar vefurinn minn var fluttur annað 12. maí 2000. Hún er nú heimild um hvernig hann leit út á síðustu öld. Greinar, gamla pistla og fleira stöff má nálgast gegnum tenglana í borðanum hér fyrir ofan. Magnusarni.com er því miður ekki til lengur en þeir sem hýstu hana á sínum tíma buðu það fyrst um sinn ókeypis. Þegar þeir ætluðu svo að fara að rukka fyrir það lét ég mig hverfa. Þannig var lífið á vefnum í gamla daga. Allt var ókeypis og enginn lét bjóða sér neitt annað.